Markaðsstofa

Þar sem árangur vex

Markaðsstofa sem hjálpar fyrirtækjum að vaxa með markvissum auglýsingum á Meta og Google ásamt öflugri samfélagsmiðlun.

Markaðsstefna og greiningMeta AdsGoogle AdsVefsíðugerðPóstlista markaðssetningSamfélagsmiðlarHönnunRáðgjöf Markaðsstefna og greiningMeta AdsGoogle AdsVefsíðugerðPóstlista markaðssetningSamfélagsmiðlarHönnunRáðgjöf
Þjónusta

Réttu lausnirnar fyrir þitt fyrirtæki

Við greinum þarfir fyrirtækisins og finnum þær markaðslausnir sem skila bestum árangri.

Af hverju Vexana

Markaðssetning með árangur að leiðarljósi

01

Sérþekking

Sérfræðingar með vottun í Meta Ads og Google Ads.

02

Árangur sem þú getur mælt

Við fylgjumst með herferðum í rauntíma og þið hafið aðgang að lifandi mælaborði.

03

Persónulegt samstarf

Þú ert í beinu sambandi við sérfræðinginn sem vinnur að markaðssetningu fyrirtækisins þíns.

04

Heildstæð markaðsþjónusta

Stefna, efnisgerð, auglýsingar og vefmál, samræmt með markmið fyrirtækisins að leiðarljósi.

Viðskiptavinir

Viðskiptavinir okkar

Videomarkaðurinn
Malarhorn
Bright Beyond
Bryggjuhátíð á Drangsnesi
Meðmæli

Orð frá viðskiptavinum

„Við höfðum misst töluvert af viðskiptum frá ferðaskrifstofum árið áður og einkunnir höfðu jafnframt farið lækkandi. Í lok árs 2025 fórum við því í markvissa vegferð til að snúa þessari þróun við. Tekjur frá beinum bókunum og OTA-söluleiðum hafa síðan aukist um 52%.“

Snorri Pétur Eggertsson
Framkvæmdastjóri, Malarhorn

„Vexana tók við markaðssetningunni hjá okkur fyrir nokkrum mánuðum og síðan þá höfum við séð skýra aukningu í sölu. Auglýsingarnar eru faglega unnar og þjónustan framúrskarandi.“

Norbert Serwatko
Verslunarstjóri, Videomarkaðurinn

„Frábær þjónusta, afslappað og vinalegt viðmót frá fyrstu stundu. Áhugi þeirra á verkefninu var augljós og þær sýndu bæði fagmennsku, traust og mikinn vilja til að finna lausnir sem hentuðu best.“

Dögg Guðnadóttir
Listakona og eigandi, Bright Beyond
Spurt og svarað

Algengar spurningar

Það er eðlilegt að hafa spurningar áður en samstarf hefst. Hér svörum við því sem fyrirtæki vilja helst vita áður en þau bóka fund.

Er markaðsstofa aðeins fyrir stór fyrirtæki?+
Nei, alls ekki. Við vinnum með fyrirtækjum af ólíkum stærðum og aðlögum samstarfið að þörfum, markmiðum og umfangi hvers fyrirtækis. Góð markaðssetning er ekki bara fyrir stærstu fyrirtækin.
Þarf fyrirtækið að hafa mikið fjármagn til að vinna með markaðsstofu?+
Nei. Samstarf við markaðsstofu getur oft verið hagkvæmara en að ráða starfsmann í fullt starf allt árið. Þið fáið aðgang að fjölbreyttri þekkingu og greiðið fyrir þá þjónustu og það umfang sem fyrirtækið þarf á að halda.
Hvað ef við vitum ekki hvaða þjónustu við þurfum?+
Það er ekkert mál. Á fyrsta fundinum förum við yfir stöðuna, markmiðin og helstu áskoranir fyrirtækisins. Í framhaldinu leggjum við til markvissar aðgerðir út frá markmiðum fyrirtækisins.
Hvað gerist á fyrsta fundinum?+
Fyrsti fundurinn er án skuldbindinga. Við kynnumst fyrirtækinu, ræðum markmiðin og skoðum hvar helstu tækifærin liggja. Eftir fundinn ættuð þið að hafa skýrari mynd af því hver næstu skref gætu verið.
Hvað kostar þjónustan hjá Vexana?+
Verð fer eftir umfangi og þjónustuþáttum sem henta þínu fyrirtæki.
Er ég bundin í langtímasamning?+
Nei, þú ert ekki bundin(n). Við vinnum með mánaðarlega samninga sem hægt er að segja upp með eins mánaðar fyrirvara.
Vinnið þið með fyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins?+
Já, við vinnum með fyrirtækjum um allt land.
Hvernig getum við fylgst með árangrinum?+
Viðskiptavinir okkar fá aðgang að lifandi mælaborði þar sem hægt er að fylgjast með helstu árangursmælingum.

Allt byrjar á góðu samtali

Engar skuldbindingar

Bóka fund →